XMAS tónleikarnir, eðall í íslenskri menningu

Óflokkað 21 December 2006 | 0 Comments

Við Bjarni skelltum okkur á XMAS tónleika X-ins í gær þar sem aðallinn úr íslensku tónlistarlífi steig fram. Hópurinn var alls ekki af verri endanum, Brain Police, DR Spock, Skakkamannage, Reykjavík !, Toggi, Lay Low, Pétur Ben, Sprengjuhöllin, Dikta, Future Future, Noise, Ultra Mega Teknóbandið Stefán og Wulfgang. Meiriháttar tónleikar, viss Airwaves stemning sem myndaðist í manni og verða XMAS árviss viðburður eins og airwaves hér eftir. Viddi mætti svo á seinnipart tónleikanna með nýju Canon vélina sína og fékk ég aðeins að fikta. Djöfull get ég ómögulega beðið eftir minni.

Leave a Reply