Vinnustaðagrín?
Brunavarnarkerfið fór í botn hérna áðan, þannig að í rólegheitum var kíkt fram á gang og séð hóp fólks rölta ofanaf efri hæðum byggingarinnar (Netheimur er á fjórðu hæð), svo það var ákveðið að kíkja með áleiðis niður til að sjá hvort húsið væri nokkuð að brenna. En þegar niður um eina hæð var komið var drepið á kerfinu svo maður kom sér bara upp aftur. Þegar upp var komið byrjaði ég að fá SMS, sent af vodafone.is;
Og núna skil ég ekki alveg, hvort brunabjallan sem tæmdi næstum 6 hæða bankabyggingu væri hluti af vinnustaðagríni sem ég einn fæ svo SMS um, og í 20 eintökum.






