Tækjaóður desember
Ég varð mér úti um nýja tölvu um daginn, skellti upp MediaCenter, keypti MCE fjarstýringu, MCE lyklaborð og slatta af diskaplássi. Eftir kaupin áttaði ég mig á því að ég var að eignast mína fyrstu heimilistölvu frá því ég flutti suður. Þetta tölvuleysi er eitthvað sem ég hef örugglega ekki reiknað með hér fyrir fjórum-fimm árum þegar ég flutti hingað fyrst.
Elvar frændi birti svo smá skúbb á síðunni hjá sér varðandi myndavélakaup en sendiherra minn í Svíþjóð, Guðni frændi, pantaði fyrir mig myndavél sem hann annaðhvort kemur með um helgina eða platar einhvern félaga sinn til að grípa með til landsins í næstu viku.
Við erum að tala um Canon EOS 400D vélina, alvöru græja, svo ég kem til með að upplifa þessi jólin í gegnum linsu myndavélarinnar!






