Óflokkað
29 December 2006 | 0 Comments
Nú er maður búinn að vera í rúma viku hérna fyrir norðan og haft nóg fyrir stafni. Er búinn að vera að flytja gamlar upptökur af okkur systkinunum yfir á DVD og skemta mér konunglega yfir að horfa á það efni.
Hver ætli sé þarna í regnstakknum?
Annars er rebelinn að gera góða hluti og [...]
Óflokkað
26 December 2006 | 0 Comments
…er góð skemtun.
Snjórinn var nú ekki lengi að fjúka í burtu hérna, sem gaf Binna ágætis færi á að taka út hjólið. Ég tók að sjálfsgöðu upp myndavélina og myndaði.
Óflokkað
25 December 2006 | 0 Comments
Örlítill jólasnjór lét sjá sig hérna í morgun svo jólin líta mikið betur út núna en rokið og rigningin á aðfangadag. Villi Árna flutti myndavélina norður í gær svo nú gerir maður lítið annað en að fikta í þessu. Annars óska ég ykkur gleðileg jóla gott fólk, og hafið það sem allra best yfir jólin.
Óflokkað
21 December 2006 | 0 Comments
Við Bjarni skelltum okkur á XMAS tónleika X-ins í gær þar sem aðallinn úr íslensku tónlistarlífi steig fram. Hópurinn var alls ekki af verri endanum, Brain Police, DR Spock, Skakkamannage, Reykjavík !, Toggi, Lay Low, Pétur Ben, Sprengjuhöllin, Dikta, Future Future, Noise, Ultra Mega Teknóbandið Stefán og Wulfgang. Meiriháttar tónleikar, viss Airwaves stemning sem myndaðist [...]
Óflokkað
14 December 2006 | 0 Comments
Ég varð mér úti um nýja tölvu um daginn, skellti upp MediaCenter, keypti MCE fjarstýringu, MCE lyklaborð og slatta af diskaplássi. Eftir kaupin áttaði ég mig á því að ég var að eignast mína fyrstu heimilistölvu frá því ég flutti suður. Þetta tölvuleysi er eitthvað sem ég hef örugglega ekki reiknað með hér fyrir fjórum-fimm [...]
Óflokkað
7 December 2006 | 0 Comments
Brunavarnarkerfið fór í botn hérna áðan, þannig að í rólegheitum var kíkt fram á gang og séð hóp fólks rölta ofanaf efri hæðum byggingarinnar (Netheimur er á fjórðu hæð), svo það var ákveðið að kíkja með áleiðis niður til að sjá hvort húsið væri nokkuð að brenna. En þegar niður um eina hæð var komið [...]
Óflokkað
6 December 2006 | 0 Comments
Miðað við kosningu í skoðanakönnuninni hér til hliðar er misjafn smekkur fólks hvenar skal byrja að skreyta. Flestir vilja 1. des, en aðrir bara á þorláksmessu. Þessi ó samstaða gesta síðunnar gaf mér möguleika á smá fikti við að útbúa sitthvort CSS’ið til að stýra útliti síðunnar
Valið vistast í cookies (dúsum) svo næst, [...]
Óflokkað
1 December 2006 | 0 Comments
Ég er orðinn svo vanafastur í vef-rápi mínu að ég á það til að renna gegnum haug af síðum án þess að muna svo eftirá hvort ég hafi séð eitthvað nýtt. Þarf að finna eitthvað nýtt og ferskt til að skoða. Hvaða síðu varst þú að skoða áður en þú ákvaðst að kíkja á mína? [...]