Sykurmolarnir voru snilld

Óflokkað 20 November 2006 | 0 Comments

Kom mér pínu á óvart hvað ég skemmti mér vel á Sykurmolunum. Fór eiginlega bara afþví mig langaði að sjá þá svona úrþví maður var nánast ekki neitt þegar þeir voru spila, og langaði bara að hafa séð eitt af stærstu böndunum okkar. En þegar við röltum út var ég hæst ánægður með þetta og orðinn smá aðdáandi. Björk er með magnaða söngrödd, og hefur hætt að eldast þegar hljómsveitin hætti. Einar Örn ofvirkur á sviðinu, talaði um tæknileg mistök og var bara helvíti skemmtilegur.

Annars er það snjór og aftur snjór hérna í bænum. Golfinn stendur sig eins og hetja þrátt fyrir sumardekkin og veit ég að Jói hefur ekki stoppað alla helgina í að leika jeppakall.

Viðhengi er nýr fítus hérna, en að þessu sinni er það lagið Engrish Bwudd með hljómsveitinni Man Man. Fullkomið föstudagslag til að koma manni í gott skap á mánudegi.

Leave a Reply