Sumar á Hofsósi
Pabbi vill meina að það sé sumar og sól á Hofsósi, í tölvupósti sem hann sendi mér og sendi með mynd því til sönnunar. Er ekki alveg viss um að þessi mynd sé up-to-date enda vill Sjöfn meina að það viðri einhvernvegin öðruvísi.
Annars ætlum við Bjaddni að skella okkur á Sykurmola tónleikana í kvöld og annaðkvöld verður sennilega fengið sér bjór með Val frænda, enda er kappinn að verða há-aldraður í næstu viku.






