Skagafjörðurinn um helgina

Óflokkað 27 November 2006 | 0 Comments

Ég skellti mér norður yfir helgina, og slappaði af á Skagafirðinum. Eins og svo oft áður þegar maður skellir sér norður var þar tölva sem þurfti á smá viðgerðum að halda, en seint bjóst ég nú við að það yrði í einhverju fjósi, bókstaflega. En jú, þau á Hrauni eru búin að vera með vélmenni í vinnu hjá sér sem haft er eftirlit með úr tölvum í mjólkurhúsinu og bráðum bara úr heimilistölvunni, og vorum við Binni eitthvað að brasa með að reyna að tengja þetta allt saman. Seint bjóst ég allavega við því að nota Remote Desktop til að skoða stöðuna á beljum í fjósi.

Leave a Reply