MTV og Vísir
Gengið hjá MTV voru að kasta í loftið nýrri síðu, sem er öll gerð í flash. Ég hélt þetta væri búið að vera bannað frá því fyrir árið 2000! Þoli ekki ofnotkun á flash. Það á einfaldlega að banna heilar flash síður, nema auðvitað þær séu gerðar af fyrirtækjum eins og 2advanced. Endilega kíkið á síðuna þeirra, virkilega gaman að skoða hana þó maður sé ekkert að spá í innihaldinu. Mæli sérstaklega með að flakka milli grunn flokkanna Company, Portfolio, Services o.s.frv þar sem magnaðar myndir koma í ljós.
Nýr Vísir.is leit svo dagsins ljós í síðustu viku. Fínn vefur hjá þeim, RSS og allt það helsta. Miklu betri stuðningur síðan við Firefox en gamli vefurinn hafði, fyrir utan hvað þegar myndir opnast í “sprettigluggum” hjá þeim, þá virðist hún aldrei passa í hann.






