100 milljón vefsíður
Í vikunni mátti lesa fréttir þess efnis að vefsíðurnar á netinu væru orðnar 100 milljón talsins. Þessi áfangi er auðvitað að stórum hluta mér að þakka þar sem ég er búinn að dæla út síðum uppá síðkastið. Gæði þeirra reyndar ekkert til að dást yfir, en það er víst innihaldið sem skiptir máli.
Smellti saman í frekar miklum fljótheitum annarri hljómsveitar síðu um daginn, buttercup.is, en þeir herramenn risu upp frá dauðun í vikunni og hentu út plötu. Karfan á krók fékk svo heldur betur yfirhalningu og reyndar einhver smáatriði enn eftir þar. Gríslingarnir hennar Elfu, Dísa og Ísak, fengu svo nýja síðu líka; disak.net og skógarkötturinn Dögun enn aðra síðuna. – Semsagt, nóg búið að vera að gera á kvöldin og um helgar.
En í vinnunni er nýtt verkefni búið að vera í gangi og ætla ég að bjóða ykkur – ágætu gestir finnsson.net – að vera fyrstu notendur þess nýja vefs og prufukeyra nokkra hluta hans áður en það verður opnað fyrir almenning. Þannig fylgist með






