Þessu er ég nú varla að nenna

Óflokkað 8 November 2006 | 0 Comments

Hvernig væri nú að bora nokkrar holur í jörðina og tappa af smá hita til að gera þessa eyju okkar aðeins þægilegri á veturnar? Ég veit Viðar, að ég á að vera búinn að venjast þessari veðráttur enda er ég búinn að búa hér í nokkur ár. Hinsvegar er þetta alltaf jafn erfitt. Reyndar grunar mig sterklega að Jói sé svolítið kátur yfir þessu öllu.

Annars varðandi jarðvarmann og orku þessa lands, þá kláraði ég loksins Draumalandið og verð ég nú bara að viðurkenna að álit mitt á því fólki sem hefur stýrt þessu landi síðustu áratugi hefur hrunið nokkuð svakalega. Bjóst aldrei við að verða einhver svakalegur náttúruverndarsinni, en ég er sko tilbúinn í að hlekkja mig við vinnuvélar! Ætla að æfa mig á ljósritunarvélinni hérna í vinnunni í dag. Eða kanski kaffivélina, við sjáum til.

Leave a Reply