Netheimur: Nýjar síður
Tvær nýjar síður sem ég er nokkuð montinn af hafa sprottið upp á netinu síðustu vikuna, og vegna þeirra og annarra verkefna hef ég lítið gefið mér tíma til skrifa hérna á þessari ágætu síðu.
Morgunhaninn.is er, að ég held, fyrsta podcast síðan hérna heima þar sem útvarpsþátturinn Morgunhaninn á Útvarpi sögu er birtur á netinu. Podcast er svo eitthvað sem margir eru farnir að nota, enda búið að vaxa í vinsældum á netinu síðasta árið. Spurning að setja saman smá pistil um það við tækifæri og jafnvel benda á nokkur sniðug podköst, nema einhver geti bent á ágætis skrif um það á íslensku?
Sömuleiðis fór ný síða hljómasveitarinnar Skítamórals í loftið um helgina, en síðuna hannaði hinn mikli photoshoppari Valli Matt og var ég eitthvað með puttana í forrituninni á bakvið hana. Í kvöld má svo reikna með að ég klári loksins upplyftingu á heimasíðu Körfunnar á króknum og svo eru allavega tvær aðrar síður væntanlegar í vikunni.
Mæli svo með nýjasta House þættinum, en litla Ísland og hvað við erum líbó á hlutina kemur fram í honum :þ






