Myndir og RSS
Guðni var eitthvað að kvarta yfir að ég væri ekki með RSS feed á síðunni minni, þannig ég stökk til og græjaði málið. Reyndar hérna fyrir nokkrum útgáfum síðan var ég með það upp og var meira að segja listaður á rss.molar.is sem hélt utanum helstu blogg-síður landans. Ég ákvað að taka þessu skrefinu lengra og skella myndaflokkunum líka í RSS, svo hægt er að fylgjast vel með hvenar ég skelli inn nýjum myndaflokkum.
Veit ekki hversu stórt hlutfall gesta síðunnar vita hvað RSS er og útskýri ég það kanski einhvertíman síðar, en það allavega gefur þér kost á að vera “áskrifandi” af blogg færslum, fréttum eða öðru efni sem er listað í RSS. IE 7 og Firefox 2.0 vafrarnir sem báður komu mjög nýlega út eru einmitt töluvert bættir hvað RSS varðar en kosturinn við þetta alltsaman er sá að þú veist alltaf hvaða síða er með nýtt efni, og styttir vafr-tímann til muna.
Annars henti ég loksins inn myndum frá Airwaves en þar sem ég var svo upptekinn af að hlusta á tónlistina gaf ég mér voða lítinn tíma í að mynda. Viðar tók svo líka eitthvað, þannig kíkið á kappann.

