Icelandairwaves, dagur tvö
Gærkvöldið var alveg magnað. Þegar við mættum rákum við augun í að Tarfurinn var á trommunum í Led by a Lion bandinu og kom færni hans þokkalega á óvart. Frétti síðar að kappinn hafi byrjað tónlistarferilinn við settið og það virtist ekkert leyna sér. Cynic Guru voru næstir á svið og þræl skemtilegir einsog alltaf. Telepathetics mættu síðan, og var ég að fíla þá í ræmur. Noise stóðu eiginlega bara undir nafni, og held ég að það sé þeim að þakka að ég heyri varla hálfa heyrn í dag. Þá var komið að ameríkönunum í We are Scientists og troðfylltist þá Gaukurinn af hoppandi ameríkönum og lenti Viddi greyið nokkrum sinnum undir einum. Eftir að Dikta voru búnir að hafa síðan töluvert meiri læti en ég bjóst við af þeim gáfumst við upp og flúðum, enda búnir að standa í þokkalegasta troðning í rúma fjóra tíma – sem er of mikið held ég á miðvikudagskvöldi.
Í kvöld er stefnan tekin á Reykjavik Art Museum til að byrja með að sjá Ske, stökkva svo yfir á Nasa en þar verður Lay low með band. Eftir það vandast málið enda úr nægu að velja, en spurningin er að enda þetta allavega á Mugison.






