Í Skagafirðinum

Óflokkað 14 October 2006 | 0 Comments

Við Jói skelltum okkur norður í gærkvöldi, vorum lentir hérna á Hofsósi um miðnætti og mætti okkur þá svínakjöt og algjört veislufæði hjá mömmu. Svo fengum við fínan félagsskap í póker og bjórþamb framundir morgun, Elvar stóð við sitt, mætti og opnaði meira að segja nokkra bjóra. Það endaði auðvitað í slagsmálum eins og honum einum er lagið, spurning reyndar hvort hægt sé að kalla það mikil slagsmál, mýflugur að pirra hann – væri nær lagi að kalla þetta. Í dag er svo búið að vera brjálað rok, pickupinn á Hrauni búinn að fjúka einn hring og er víst bara ónýtur núna – þannig við höfum haldið okkur bara innandyra og síðustu bjórar gærkvöldsins að klárast.
Meira áfengi er síðan væntanlegt þegar líður á kvöldið, svo það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af okkur.

Leave a Reply