Hvalir?
Nú virðist allt ætla að verða vitlaust úti í heimi útaf þessum 9 hvölum sem Ísland ætlar að fara að veiða. Fjármálaráðherra okkar á BBC að reyna að afsaka þetta, og stórefast ég um að honum takist það nú neitt sérstaklega vel enda virðast ráðherrarnir okkar alltaf koma hálf kjánalega út þegar þeir reyna fyrir sig í enskunni. Meira að segja varð allt vitlaust á digg.com fréttasíðunni þar sem þessi frétt poppaði upp og allir höfðu eitthvað um það að segja. Sjálfum er mér eins sama og hægt er, nema hvað ég vill engan vegin að landið fyllist af öfgafullum grænfriðungum öskrandi á landann. Spurning hvort kallinn í brúnni hafi eitthvað um þetta að segja? Grunar að hann sé ekkert nema sáttur við að losna við eitthvað af þessum dýrum hérna frá landinu.






