Hef sjálfsagt móðgað þá blessaða
Þá er mesta reiðin runnin af manni og úrþví enginn er búinn að stökkva fram og öskra “tekinn” fer ég að kaupa þetta alltsaman. Hinsvegar þykir mér löggan afskaplega hallærisleg ef tóbakstyggjandi guttar sjá um að handjárna fólk niðri í miðbæ kaupi það ekki á innan við mínútu að þeir séu lögreglumenn. Og fyrir það fyrsta fatta ég ekki ástæðuna fyrir að þeir hafi ákveðið að þeir þyrftu að hafa einhver afskipti af mér? Kanski ég hafi verið of eðlilegur og ekki passað inní þarna innan um listaspýrurnar á listasafninu.






