Annar dagur í airwaves

Óflokkað 20 October 2006 | 0 Comments

Handtekinn af fíknó, færður niðrá löggustöð á Hverfis – engin skýrsla eða neitt. “Löggur” sem lúkka eins og rétt rúmlega tvítugir guttar og draga mann inní löggubíl. Skellt inn í klefa og beðinn um að tæma vasa og búið. Enginn almennileg leit á manni og bara frekar kjánalegir leik-hæfileikar hjá liðinu. Villi lögga þykist ekki vita neitt, né nokkur af “vinunum”. Var á miðjum Mugison tónleikum sem ég var að fíla í ræmur, en neibb – þokkalega skemmdir fyrir manni. Allir “vinir” manns þykjast voða súrir yfir að airwaves hafi verið skemmdir fyrir manni – eins og þeim sé ekki nokk sama um það. Hérna … ha… ha .. og ha.

Ef löggan stendur svo á bakvið þetta, sem vonandi kemur í ljós í fyrramáli – þá hefur sú litla virðing sem ég hef borið fyrir löggu greyjunum hrapað all svakalega. Sá sem á þetta til á myndbandi er vinsamlegast beðinn um að birta þetta, enda er þetta frekar pirrandi miðja á airwaves!

Leave a Reply