Zen:Buz BETA komið út!
Ég er búinn að vera að nota strætó annað slagið núna síðan ég seldi bílinn fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan og þar sem ég get nýtt mér félagana reglulega, þá er þetta ekkert endilega eitthvað sem gerist tvisvar á dag. Fyrir vikið læri ég frekar hægt á hversu margar mínútur yfir hvað strætó fer héðan og þaðan. Þar sem ég á svo eðal PMD (Portable Media Device) – eða Video Spilara sem getur hýst myndir, ákvað ég að vista kortin af bus.is inná græjuna og líka smækka tímatöflurnar svo þær smellpassi á skjáinn á spilaranum. Skjárinn á Zen:M er 2,5″ og með 320×240 upplausn svo myndirnar af tímatöflunum eru sniðnar að þeirri stærð. Sumir iPod spilararnir nota sömu upplausn veit ég, svo þetta vonandi getur nýst sem flestum sem hafa áhuga á að hafa strætó kerfið alltaf í vasanum.
Í augnablikinu eru bara stofnleiðirnar (1-6) í þessu, en sé þetta eitthvað sem fólk hefur áhuga á þá er ég ekkert svo lengi að bæta hinum leiðunum við svo endilega látið mig vita. Sömuleiðis ef myndirnar koma ílla út og þá upplýsingar um spilarann svo ég geti grenslast fyrir um hvaða upplausnir eru algengastar.
Ég skýrði þetta í höfuðið á spilaranum, svo þetta “project” fær nafnið ZenBuz til að byrja með.
Að auki vill ég taka fram að ég á engan heiður af þessum kortum heldur Auglýsingastofa E.Beckman og veit ég að ég er að brjóta höfundarréttarlög og það verður bara að hafa það. Ef þeir kæra mig og verða brjálaðir þá gera þeir það bara. Ég er bara að reyna að auka þægindi almúgans.






