Norðurlandið, Keflavík og Magni
Blogg-löngunin hefur ekkert verið nein gríðarleg síðustu daga enda ekki mikil gleði í gangi hjá fjölskyldunni. Fer norður í vikunni og stoppa framyfir helgi en tilefnið mætti vera allt annað. Annars skrapp ég til Keflavíkur þessa helgina og kíkti í heimsókn til Gunna en Keflvíkingar héldu uppá ljósanótt og meðal annars vöktu upp guðinn Ægi. [...]






