Norðurlandið, Keflavík og Magni
Blogg-löngunin hefur ekkert verið nein gríðarleg síðustu daga enda ekki mikil gleði í gangi hjá fjölskyldunni. Fer norður í vikunni og stoppa framyfir helgi en tilefnið mætti vera allt annað.
Annars skrapp ég til Keflavíkur þessa helgina og kíkti í heimsókn til Gunna en Keflvíkingar héldu uppá ljósanótt og meðal annars vöktu upp guðinn Ægi. Hálf skammarlegt að segja frá því að maður hafi verið í bænum en ekki kíkt á þetta
Tók að mér að sofna nokkuð snemma og vera hressastur morguninn eftir til að keyra í bæinn aftur. Tók eitthvað af myndum og henti hérna inn á síðuna.
Annars er Magni það sem allir íslendingar tala um og vonumst við auðvitað til að hann komist í úrslitaþáttinn. Samkvæmt spjall-síðunum stóð hann sig vel í þættinum sem verður sýndur næst, flutti þar Bítlalag og frumflytur svo lag eftir sjálfan sig. Skoðanir Supernova meðlimanna voru svipaðar og venjulega, að hann stæði sig alltaf vel og sagði Jason eitthvað á þá leið að Magni bráðnaði alltaf vel saman við húsbandið sem allir eru held ég sammála um að Magni ætti að fara að túra með.






