Norður, norður, norður.
Skellti mér inná flugfelag.is og pantaði mér flug norður. Kostar ekki nema 4.090 kr að fljúga þetta, legg af stað 18:45 í dag og verð lentur 50 mín síðar. Eðall er þetta.. vissi það ekki.
Annars eruð þið ágætu gestir mínir ræflar upp til hópa (fyrirgefið orðbragðið). Eftir að þið þurftuð að fara að skrifa inn tölustafinn tvo til að geta sent inn skoðanir hafið þið varla sagt orð! Til að auðvelda ykkur lífið ákvað ég að láta formið vista tölustafinn svo þið þurfið ekki að slá hann aftur inn (nema þið farið á nýja tölvu).
Keypti mér svo bókina Vetrarborgin eftir Arnald Indriða um helgina og las hana í vikunni. Helvíti góð og bíð ég enn spenntur eftir að Mýrin komi í bíóhúsin svo maður geti séð Ágústu Evu taka Evu Lind. (Þessi setning meikar ekkert sens nema þú hafir lesið einhverja af bókunum Arnaldar).

