Kominn til ÍSlands
Þegar við vorum að koma inn til lendingar í Keflavík tilkynnti flugstjórinn að hitinn væri um 7 gráðurnar svo heill hellingur af “jeminn” og “guð” heyrðist um vélina enda var hitinn um 27 gráðurnar þegar við fórum í loftið um kvöldið á Alicante.
Þessi óvænta ferð til Spánar var eðall, enda ekki hægt annað en að hafa það gott með svona aðstöðu sem við vorum með þarna. Vill nú síðan bara þakka þessum hóp kærlega fyrir að bjóða mann velkominn enda bjuggust þau varla við að fá einhvern íslendings kjána í nokkura daga heimsókn til sín þarna út.
Annars eru myndirnar komnar inn ásamt myndum af fylleríinu kvöldið áður en ég fór út sem á einhvern þátt í að maður rauk í þessa ferð.






