Creative Zen:M
Sagðist ætla að monta mig af spilaranum, og stend við það. Þetta er semsagt 30GB diskur, MP3-, DivX- og allurfjandinn-spilari. Bjaddni keypti hann fyrir mig í Danmörk og kom með til landsins um helgina. Sótti hann til hans í gærkvöldi og búinn að að vera að prófa hann aðeins. Virðist styðja töluvert magn af codecum, og vonandi eiga firmware uppfærslur eftir að fjölga þeim og fítusum spilarans. Smellti eitthvað af þáttum og efni inná hann uppí vinnu í gær og ætlaði að nota hann til að létta mér stundir í strætó á leiðinni í vinnuna í morgun, en auðvitað horfði ég á þætti í gærkvöldi þar til ég tæmdi rafmagnið á honum, svo mér leiddist í morgun

