Magni: Taka Fjöllin hafa vakað!
Þjóðarstoltið sem kemur upp þegar maður horfi á þetta. Allavega, ég er kominn með lausnina á þessu öllu. EF magni lendir einhvertíman í einu af þremur neðstu sætunum, já eða þegar þau verða bara þrjú eftir og eiga að flytja eitthvað að eigin vali að þá á Magni að taka Fjöllin Hafa Vakað á íslensku. Það yrði sjálfsagt sjálfsmorð fyrir hann en mig grunar bara að hann langi ekkert til að vinna þetta. Hann veit alveg að þessi hljómsveit lifir ekkert í mörg ár og að hann er kominn nú þegar með góðan aðdáendahóp sem hann getur svo byggt á í framtíðinni. Áður en hann tekur Fjöllin á hann að henda inn enskri þýðingu á netið og segja fólki áður en hann flytur lagið að googla upp textanum (eða nota MSN search úrþví MSN er að sponsa þetta). Hann getur þýtt fyrstu tvær línurnar þarna á sviðinu fyrir þau áður en hann byrjar og sagt heiminum að læra þetta lag, því hitti þau einhvertíman íslending og byrji að raula lagið að þá eru 100% líkur á að íslendingurinn taki undir. Rythmað í þessu lagi er drullu flott og þetta er einfaldlega töff rokklag. Spurningin er svo bara hversu hallærisleg íslenskan hljómar fyrir þessum “hörðu rokkurum” sem horfa á þáttinn og kjósa þennan Lukas fávita alltaf áfram, að ég tali nú ekki um þarna Z geimveruna.
Allavega, fjöllin hafa vakað – sem þjóðlag íslendinga í augum heimsbyggðarinnar!
Ég meina, hversu töff hefði verið að taka það fyrir leik spánverja og íslendinga? Raul og félagar hefðu nötrað af hræðslu! :þ






