Grill, bjór og kúlan

Óflokkað 2 August 2006 | 0 Comments

Valur og Una grilluðu rif í gær og buðu mér í kvöldmat. Algjört lostæti maturinn, og bjórinn með var góður. Eftir nokkra bjóra stóðum við svo útá palli og stakk einhver uppá að við drifum okkur í reverse-bungee kúluna í tívolíinu. Þökk sé bjórnum held ég vorum við Valur báðir voða kokhraustir og einfaldlega drifum okkur niðureftir og létum skjóta okkur uppí loftið. Frekar hress kúla þetta. Ég bjallaði bæði í Jóa og Balla og hvorugur þeirra var maður í þetta.

Ef það verður bærinn um helgina þá mana ég þá, Hauk, Viðar og allt liðið í þetta hér og nú!

Leave a Reply