Góð menningarnótt

Óflokkað 22 August 2006 | 0 Comments

Þá er þessi ágæti viðburður menningarnótt afstaðin. Einhvernvegin endar þetta alltaf sem svakalegt fyllerí framundir morgun og það var engin undantekning þetta árið. Við byrjuðum nokkrir kapparnir á að fara út að borða á Tapas, en þar eru bornir fram dýrindis spænskir smáréttir. Marineraðar lambalundir með lakkríssósu, hörpuskel og beikonvafðar döðlur á spjóti og kjúklingastrimlar og grísakjöt með einhverjum furðulegum sósum skolað niður með nokkrum ísköldum. Eftir matinn voru það svo nokkrir kaffi og koníak.

Hvað varðar menningarlega hlið kvöldsins, að þá var hún búin um þetta leiti. Við tóku captein og bjór-glös í bænum, smá heimsókn til Dagnýar og svo bara meira bærinn. Ég var furðulega lélegur með myndavélina þannig það verður eitthvað voða lítið af myndum sem ég skelli inn – en það verður þó eitthvað.

Leave a Reply