Ertu með Windows ?

Óflokkað 11 August 2006 | 0 Comments

Ég er enginn sérlegur Windows-fan og ven mig á að skrifa ekkert mikið um stýrikerfið.

Hinsvegar vill ég benda þér á eitt: Uppfærðu það núna!

Eins og svo oft áður kom frétt á mbl.is um að Microsoft hafi sent frá sér tilkynningu um að nokkrar öryggisholur hafi fundist í öllum útgáfum Windows og sendu Microsoft menn frá sér “plástra” við því, svo þeir sem eru með sjálfvirka uppfærslu á Windows á hjá sér ættu að vera í góðum málum. Department of Homeland Defense (DHS) í hinum elskuðu BNA sendu líka frá sér tilkynningu um eina af þessum holum og eru öryggisfyrirtæki útum allan heim núna að reka á eftir fólki í að uppfæra þar sem að “Sá stóri” er að koma aftur. Öryggisholan, MS06-040, er jafn hættuleg og MSblast ormurinn nýtti sér til að lama heilu fyrirtækin árið 2003. Enn er ekki orðinn til ormur sem nýtir sér nýju holuna (halda menn) en það er næstum bara spurning um hvenar á næstu dögum hann verður gerður. Þannig að nú skulu allir plástra svo sá ormur verði bara eitthvað fiskafóður.

Með löglega útgáfu af Windows?
Farðu á Windowsupdate.com

Með ólöglega?
Held það sér bras. Þurfið að komast framhjá Genuine-check og uppfæra af windowsupdate.
Þið getið samt prófað þessa síðu, þarna eru tenglar í plástrana eina og sér. Veljið tegund stýrikerfisins og sýnist mér þið geta bara náð í þá.

Leave a Reply