Blíða í henni Reykjavík

Óflokkað 15 August 2006 | 0 Comments

Einhvernvegin grunar mig að það sé súld eða rigning fyrir norðan þar sem það er frábært veður hérna í bænum. Ég heyrði í gamla settinu í gær og í leiðinni Þresti frænda sem er í heimsókn á Hofsósi og kenndi kallinum á nýju heimasíðuna sem ég var að gera fyrir hann. Hann á svo eftir að hendast vestur á Ísafjörð og byrja að dæla inn myndum, en kallinn er forfallinn myndavélakall ;)

Annars er ég farinn að spila tölvuleik núna, ekki oft sem ég stunda svoleiðis lagað. Valur smitaði mig af einhverri flugfíkn og fljúgum við núna í MS FlightSimulator á fullu. Spurning að drífa sig í einn flugtíma og skoða þetta betur.

Annars eru komnar tvær nýjar síður eftir mig á neti’. Útlitið á þeim er reyndar annarsvegar fengið annarstaðar frá og hinsvegar hent saman í flýti svo ég ætla ekki að eigna mér neinn heiður af því.

  • Sjöfn systir
  • Þröstur frændi
  • Þriðja síðan er svo væntanleg í vikunni. Viddi er með helvíti góðan pistil um 90′s tímabilið og Elvar er alltaf jafn jákvæður og hress á sinni síðu. Binni og Bylgja mættu nú svo standa sig aðeins betur ;)

    Leave a Reply