Akureyri jé!
Þetta er búið að vera helvíti flott so far. Hitinn í dag er búinn að vera rúmu 20 gráðurnar, nema þegar sólin kemst gegnum skýin því þá hoppar hann í tæpu 30 gráðurnar. Erum búin að gera þetta helsta í dag, þrífa bílinn, steyk og bjór á Bautannum, í ríkið og að sjálfsögðu í Brynju. Mér tókst að koma tölvunni svo inná þráðlaust net hérna í íbúðinni þannig það er aldrei að vita nema ég skelli reglulega myndum og skilaboðum inná síðuna.
Uppfært: Fyrstu myndirnar eru komnar inn, tékkið á myndasíðunni!

