Browsing archives for August, 2006

Magni og Toby taka U2 + spoilers

Óflokkað 28 August 2006 | 0 Comments

Smá vafr gegnum spjall-síðurnar. Hvað haldiði, fann link frá LA CityWalk sem er einhver gata eða svæði í LA þar sem Supernova liðið var að syngja. Fann 4 video frá þessu á YouTube þar sem Magni okkar er og kappinn tekur U2! En ekki hvað?!
Magni og Toby – Where The Streets Have No [...]

Góð menningarnótt

Óflokkað 22 August 2006 | 0 Comments

Þá er þessi ágæti viðburður menningarnótt afstaðin. Einhvernvegin endar þetta alltaf sem svakalegt fyllerí framundir morgun og það var engin undantekning þetta árið. Við byrjuðum nokkrir kapparnir á að fara út að borða á Tapas, en þar eru bornir fram dýrindis spænskir smáréttir. Marineraðar lambalundir með lakkríssósu, hörpuskel og beikonvafðar döðlur á spjóti og kjúklingastrimlar [...]

Magni: Taka Fjöllin hafa vakað!

Óflokkað 16 August 2006 | 0 Comments

Þjóðarstoltið sem kemur upp þegar maður horfi á þetta. Allavega, ég er kominn með lausnina á þessu öllu. EF magni lendir einhvertíman í einu af þremur neðstu sætunum, já eða þegar þau verða bara þrjú eftir og eiga að flytja eitthvað að eigin vali að þá á Magni að taka Fjöllin Hafa Vakað á íslensku. [...]

Blíða í henni Reykjavík

Óflokkað 15 August 2006 | 0 Comments

Einhvernvegin grunar mig að það sé súld eða rigning fyrir norðan þar sem það er frábært veður hérna í bænum. Ég heyrði í gamla settinu í gær og í leiðinni Þresti frænda sem er í heimsókn á Hofsósi og kenndi kallinum á nýju heimasíðuna sem ég var að gera fyrir hann. Hann á svo eftir [...]

Ertu með Windows ?

Óflokkað 11 August 2006 | 0 Comments

Ég er enginn sérlegur Windows-fan og ven mig á að skrifa ekkert mikið um stýrikerfið.
Hinsvegar vill ég benda þér á eitt: Uppfærðu það núna!
Eins og svo oft áður kom frétt á mbl.is um að Microsoft hafi sent frá sér tilkynningu um að nokkrar öryggisholur hafi fundist í öllum útgáfum Windows og sendu Microsoft menn frá [...]

Verslunarmannahelgin búin

Óflokkað 8 August 2006 | 0 Comments

Þá er þessi magnaða helgi búin og skrokkurinn sömuleiðis. Sófinn í íbúðinni fór ekkert sérstaklega vel með bakið á mér og rigningin ekkert heldur með kvefið. Ég er síðan svona hægt og rólega að setja restina af myndunum inn á netið, en það er sko nóg af þeim og myndbrotunum sem ég kanski klippi saman [...]

Akureyri jé!

Óflokkað 4 August 2006 | 0 Comments

Þetta er búið að vera helvíti flott so far. Hitinn í dag er búinn að vera rúmu 20 gráðurnar, nema þegar sólin kemst gegnum skýin því þá hoppar hann í tæpu 30 gráðurnar. Erum búin að gera þetta helsta í dag, þrífa bílinn, steyk og bjór á Bautannum, í ríkið og að sjálfsögðu í Brynju. [...]

Akureyri!

Óflokkað 3 August 2006 | 0 Comments

Þá er það ákveðið. Renni norður núna eftir augnablik með Hauk og Sæunni. Skaust áðan í ríkið og í að versla eitthvað af fötum til að geta sagst allavega hafa pakkað einhverju. Myndavélin fer hér með á sýna fyrstu og vonandi ekki síðustu útihátíð, þannig það verður nóg af myndum hérna eftir helgina! Hafið það [...]

Grill, bjór og kúlan

Óflokkað 2 August 2006 | 0 Comments

Valur og Una grilluðu rif í gær og buðu mér í kvöldmat. Algjört lostæti maturinn, og bjórinn með var góður. Eftir nokkra bjóra stóðum við svo útá palli og stakk einhver uppá að við drifum okkur í reverse-bungee kúluna í tívolíinu. Þökk sé bjórnum held ég vorum við Valur báðir voða kokhraustir og einfaldlega drifum [...]