Skotferð norður
Á föstudagskvöldið hringdi Haukur og tilkynnti óvænta norðurferð hjá sér til að sækja spússu sína. Ég ákvað að skjótast með og renndum við þetta nokkuð létt yfir á nýja tækinu Hauks, sem satt að segja er með meiri bílum sem ég hef setið í. Sólin elti okkur alla leið norður og settist hún meira að segja að hérna. Haukur og Sæunn ruku suður aftur í gær, enda afmæli á Kaffi Reykjavík hjá Jónka sem ég varð að beila á þar sem mamma átti afmæli í gær og varð maður nú að stoppa eitthvað og borða hjá henni góð steyk. Núna er sunnudagur svo vaknað var rétt uppúr 10 og lagst út í sólina. Ég rétt skaust inn svo núna til að opna mér bjór til að kæla mig niður og ákvað að tjá mig aðeins yfir því í leiðinni.






