Nóg að gera, og rétt rúmlega það!
Það er ekki bara það að það sé nóg að gera í forritun fyrir vinnuna, heldur hefur maður lofað hinu og þessu upp í ermina á sér sem maður ætti að vera fyrir löngu búinn að standa við. Í kvöld verður reynt að láta hendur standa fram úr ermum, með tveimur til þremur nýjum síðum fyrir fjölskyldu og vini og einu make-over eða samruna tveggja síða. Í leiðinni verð ég svo að setja upp tvær HP vélar sem ákváðu að gefast upp á eigendurnar, annarsvegar ónýtur diskur og hinsvegar vírusar og almenn Windows leiðindi. Reyni svo að klára síðurnar á morgun og koma þeim á netið svo þið getið fengið að njóta :þ
Annars er ég mjög ánægður með veðrið núna, að sjálfsögðu fyrir utan það að maður hangir inni allan daginn. Spurning að taka smá pásu í kvöldmat og skella sér í pottinn í leiðinni.
Restin af mánuðinum verður lögð undir vinnu og mjög sennilega allur ágúst mánuður líka. Frekar spennandi verkefni í gangi sem ég legg mig allan í og er ég jafnvel að spá í að sleppa að gera nokkuð af mér um verslunarmannahelgina, en það er auðvitað ekkert heilagt. Maður hefur ákveðið áður með frekar stuttum fyrirvara að skella sér á þjóðhátíð, sem væru nú ekki leiðinlegt miðað við lænöppið á böndum sem verða þar.
Er fólk annars eitthvað búið að ákveða verslunarmannahelgina?

