Humarhátíð á Höfn

Óflokkað 3 July 2006 | 0 Comments

Þar sem bíllinn seldist ekki fyrir helgi stefndi þetta í rólega vinnuhelgi hérna í bænum en uppúr kvöldmatarleiti á föstudaginn hringdi Haukurinn og tókst honum á örfáum mínútum að draga mig í gott ferðalag austur á land. Við byrjuðum þetta á hótelinu hjá mömmu hans þar sem kauði hellti vel í okkur og hélst uppi fín stemning með gítarglamri, borðtennisleikjum og pool.

Laugardaginn var byrjað uppúr hádegi með smá tetris til að koma töskum og farangrinum fyrir í kringum Ásdísi sem var aftasti farþeginn í troopernum Jóa. Jói byrjaði aksturinn en vegna afskipta ákveðinnar stéttar hérna í landinu tók Haukur fljótlega við og sá svo Danni um síðasta spölinn til Hafnar í Hornafirði. Einhver hellingur af árum er síðan maður hefur farið þessa leið þannig að þetta var sæmilega ferskt í byrjun ferðarinnar, en síðustu 100-200 km. var mann farið að langa að standa í lappirnar, þótt valtar væru.

Frænka Sæunnar reddaði okkur svo svefnpokaplássi og ekki má gleyma grillkjötinu í morgunsárið eftir ballið þarna í Höfn. Danni og Ásdís lögðu sig niðri á tjaldsvæðinu í trooper en Haukur hafði töluverðar áhyggjur af því að þau fengu ekki nóg næði þannig að á leiðinni heim af ballinu var ákveðið að athuga með þau. Þau virtust hafa það nokkuð fínt. Svona þangað til við komum allavega.

Flott helgi, og takk kærlega fyrir mig.

Leave a Reply