“Automatic sign in” á MSN

Óflokkað 5 July 2006 | 0 Comments

Já ég hef stundum verið að segja fólki hversu kjánalegt mér þykir það vera að hafa þetta virkt á MSN hjá sér, enda vill ég helst vera að tala við þann sem ég held ég sé að tala við.

Þannig er mál með vexti að Moli var tekinn af löggunni á leiðinni á Humarhátíð. Tekinn á 120 ef ég man rétt. Ég hafði reynt að orða það nokkuð varfærnislega í blogginu um ferðina hér á undan enda vissi ég ekki hvort hann hefði sagt gamla settinu frá þessu óhappi, og þekki ég það nú af eigin reynslu að maður dregur það oft að bera upp svona gleðifréttir ;)

Allavega ákvað ég að spurja Jóa útí þetta á MSN, hvort hann hefði sagt gamla settinu frá þessu og hvort ég hefði orðað þetta nógu vel á síðunni. Ég fékk svarið að þetta hafi ekki komið upp í umræðuna, svo þau vissu ekkert og að þetta væri ekki það agalegt svo það skipti engu máli hvernig ég orðaði þetta á síðunni hjá mér.

Núna rétt í þessu var Jói svo að segja mér frá því, að ég hafi alls ekkert verið að tala við hann. MSN aðgangurinn Jóa hafði opnast á tölvunni foreldra hans og upp á skjáinn hjá mömmu hans hafi komið þessi skemtilega spurning frá mér. Hvort hann hefði sagt gamla settinu frá löggunni ;)

Leave a Reply