Afbragðs helgi

Óflokkað 31 July 2006 | 0 Comments

Helgin liðin, og slapp hún alveg ágætlega. Síðasta vika var frekar þétt setin af vinnu svo það var leyft sér að slaka á um helgina. Afslöppunin fór reyndar fljótlega fyrir lítið þar sem þetta voru síðustu dagar Binna í bænum, en kappinn flytur aftur norður á morgun. Fyrir helgi réðst hann í bílakaup þar sem hann fann sér ’91 GTi Swift sem kom okkur á óvart hvað eftir annað um helgina með því að einfaldlega virka. Föstudagskvöldið var setið yfir gíturum og sötrað bjór þar til menn lognuðust útaf, enda báðir verið vinnandi frá fyrir sjö um morguninn. Laugardagurinn var notaður í að skrúfa saman Swiftinn, en bíllinn léttist töluvert við þá meðferð enda var notað meira af bensli en skrúfum. Seinnipart laugardagsins skelltum við okkur á Drift keppnina og önduðum að okkur dekkjatæjum og brælu og smellt af myndum sem má finna hérna á myndasíðunni.

Ákváðum við svo nokkuð snögglega að skella okkur á ball á Hvammstanga og nýta okkur Kidda ferðaþjónustubónda í Dæli þar rétt hjá. Gísli og Inga Birna renndu frá króknum og skemtu allir sér á balli með Buff og Love Gúrú. Af myndunum að dæma af því balli virtist áhugi margra vera hjá dönsurunum með gúrúnum, sem er svo kanski bara eðlilegt. Ferðin suður aftur var svo erfiðari en norðurferðin, enda hávaðinn í Swift einhvernvegin meiri í þynkunni heldur en í glasi.

Í gærkvöldi kíktum við svo auðvitað á Sigur Rósar tónleikana, en þar sem maður var ekki beint í hópi æstustu aðdáenda sveitarinnar var stoppað stutt við og tónleikarnir kláraðir yfir sjónvarpinu.

Svo er það bara Akureyri um næstu helgi!

Leave a Reply