Það vantar ekki sólina

Óflokkað 21 July 2006 | 0 Comments

Ekki ætla ég að kvarta yfir sólini sem búin er að skína á okkur hérna á suðvesturhorninu síðustu daga. Skilst hún sé að skreppa í smá frí, en ég vona innilega að hún láti sjá sig sem fyrst aftur. Í fríinu má hún fara norður og hlíja Elvar, en honum er búið að vera eitthvað kalt greyinu.

Annars var Imprezan seld í gær. Vill sem minnst ræða það eitthvað nánar.

En það er komin helgi. Í hádeginu nefndi Valur bæði Friðgeir og teygjukúluna við Smáralindina í sömu setningu. Gæti orðið fróðlegt.

Leave a Reply