Það er komið sumar .. aftur
Loksins þegar það kom þurr dagur með sól þá var eins og Ísland spryngi út, bærinn fylltist af liði. Ingólfstorgið troðfylltist af hjólum og hafnarbakkinn af bílum og sýndist mér töluvert af liði vera að fá sér í glas á laugarveginum. Við Viddi drulluðum okkur svo loksins í sund í gærkvöldi og í pottinn eftir helvítis leti og afsökum við okkur með fríinu á norðurlandi… þarna um daginn. Svo toppuðum við þetta alveg með því að skella okkur aftur í morgun, þannig við erum algjörlega búnir að redda samviskunni gagnvart þessu.
Binni tók svo uppá því að blogga og það er nú saga til mosfellsbæjar.
En það er komin helgi og er þetta síðasta helgi Bjaddna á klakanum. Þannig að ég geri ráð fyrir að góður hópur fái sér í glas í kvöld með honum og var Moli að tala eitthvað um grill og bjór heima hjá honum. Bjaddni ætlar að skella sér til baunalands og leggjast í leti þar, gera akkurat ekki neitt að mér skilst, svo það er kanski eins gott að það sé búið að loka Christianiu.

